Biður Kristján Þór afsökunar

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason

Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna í NA-kjördæmi, biður Kristján Þór Júlíusson, þingmann Sjálfstæðisflokksins í sama kjördæmi, afsökunar á ummælum sem hafði um Kristján Þór á bloggi sínu. Þar gaf hann í skyn að Kristján Þór gengi erinda þeirra sem fjármögnuðu kosningabaráttu hans.

„ Það var ekki fallega gert hjá mér, bæði illa sagt og ómaklegt gagnvart umræddum þingmanni og ekki byggt á neinum haldgóðum rökum.
Ég biðst því afsökunar á þessum skrifum og vona að slíkt endurtaki sig ekki," ritar Björn Valur á vef sinn í gærkvöldi.

Föstum skotum beint að Guðlaugi Þór Þórðarsyni

Í færstu á bloggi sínu skrifar Björn Valur að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fari mikinn þessa dagana og saki forsætisráðherra um að leyna þing og þjóð upplýsingum um eitthvað sem enginn virðist vera almennilega klár á hverjar eru nema Guðlaugur sjálfur.

„Enda er þar vanur maður á ferð sem kann sitthvað fyrir sér um hvernig og hversvegna leyna skal upplýsingum og forða þeim undan almenningi. Engan veit ég þingmann um utan umræddan Guðlaug Þór sem er með landsfundarályktunn síns eigin flokks á bakinu um að hann skuli hætta sem þingmaður flokksins.

Og hversvegna ætli það sé? Jú, vegna mútugreiðsla sem þingmaðurinn þáði og komu honum til þeirra valda sem hann hafði sem ráðherra í ríkisstjórn Geir H Haarde. Jafnvel fuglunum á AMX ofbauð framganga þingmannsins á þeim vattvangi og vilja lítið af honum vita af þeim sökum.

Guðlaugur Þór er reyndar ekki einn á þessum báti heldur samþykkti landsfundur sjálfstæðisflokksins einnig vantraust á einn borgarfulltrúa flokksins af sömu sökum.

Þeim félögum til viðbótar neitar síðan ágætur þingmaður sjálfstæðismanna úr NA-kjördæmi að upplýsa um hverjir kostuðu hann til þings. Þar með er ég ekki að segja að þingmenn sem ekki hafa upplýst um hverjir hafa styrkt þá í framboði gangi erinda þeirra sem þá styrkja. En öll leynd er til þess fallin að vekja upp spurningar og tortryggni sem auðvelt hefði verið að koma í veg fyrir.

En ef ég væri Guðlaugur Þór myndi ég njóta hvers þess dags sem mín væri ekki getið í fjölmiðlum í þeirri veiku von að ég hreinlega gleymdist," skrifar Björn Valur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert