Jón Gnarr maður ársins á Stöð 2

Jón Gnarr borgarstjóri með rautt nef.
Jón Gnarr borgarstjóri með rautt nef.

Fréttastofa Stöðvar 2 valdi Jón Gnarr, borgarstjóra, mann ársins 2010. Niðurstaðan var birt í Kryddsíldarþætti stöðvarinnar og mætti Jón Gnarr þar með geimverugrímu en ummæli hans um að hann væri geimvera í íslenskum stjórnmálum urðu fleyg á árinu.  

Jón sagði við Stöð 2, að það  dýrmætasta sem hægt væri að gefa se athygli og tími og það væri gaman að koma á óvart. Boðaði hann, að haldið yrði Góða kvöldið kvöldið í stíl við Góðan daginn daginn.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert