Biðst ekki afsökunar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vildi ekki biðjast afsökunar á þeim 280 milljónum sem fóru í súginn vegna galla á framkvæmd stjórnlagaþingskosninganna.

Hún sagði það ekki óeðlilegt að formgallar hafi verið á framkvæmd kosninganna þar sem hún hafi verið mjög flókin. Ríkisstjórnin er sammála um að halda stjórnlagaþing segir Jóhanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert