Borgarstjóri á spítala

Jón Gnarr.
Jón Gnarr. Ómar Óskarsson

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, verður frá vinnu út þessa viku vegna aðgerðar sem hann gekkst undir í morgun.

Hann hefur átt við ennisholusýkingu að stríða um skeið, sem ekki hefur tekist að komast fyrir með lyfjum og er aðgerðinni ætlað að ráða bót á sýkingunni.

Að sögn S. Björns Blöndal, aðstoðarmanns Jóns, er líklegt að hann komi til starfa á mánudaginn.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert