Skokkari réðist á 12 ára dreng

Hveragerði.
Hveragerði. mbl.is/RAX

Ráðist var á 12 ára dreng utan við Arion banka við Breiðumörk í Hveragerði um kl. 19:30 í gærkvöldi. Sá sem veittist að honum var maður sem var á skokki í bænum.

Drengurinn hafði ásamt tveimur félögum sínum verið á götunni er þeir sáu til manns á skokki.  Piltarnir tóku upp á því að grínast og elta manninn.  Skokkarinn brást við með því að stöðva snarlega og veitast að einum drengjanna, sló hann í andlitið, tók hann kverkataki og keyrði hann niður í gangstéttina. Maðurinn sleppti síðan taki á drengnum og hélt sína leið.  Drengurinn hlaut minni háttar áverka en var nokkuð skelkaður eftir meðferðina. 

Maðurinn er sagður vera hávaxinn á milli 30 og 40 ára.  Hann var klæddur í bláa íþróttapeysu, svartar joggingbuxur með svitaband um enni.  Lögreglan svipaðist um eftir manninum en fann ekki.  Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um atvikið eða þekkja til lýsingar á manninum að hafa samband í síma lögreglunnar 480 1010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert