Umhverfisráðherra segi af sér

Þjórsá.
Þjórsá. Ragnar Axelsson

Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður Framsóknarflokksins, segir að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra eigi að segja af sér vegna dóms Hæstaréttar um aðalskipulag Flóahrepps.

Sigurður Ingi segir að þrátt fyrir að umhverfisráðherra fengi hverja ráðlegginguna á fætur annarri þá hafi ráðherrann ekki hlustaði á eitt né neitt. Margir hafi bent ráðherranum á að hún hefði ekki lagastoð í að hafna aðalskipulagi Flóahrepps.

„Og þegar niðurstaða héraðsdóms lá fyrir var það mér og fleirum óskiljanlegt af hverju ráðherrann hlustaði ekki á þau góðu ráð. Þess í stað setti ráðherrann undir sig hausinn og má segja ítrekaði lögbrot sitt með því að áfrýja til Hæstaréttar.

 Nú hefur æðsti dómstóll landsins talað - ráðherrann braut landslög. Afleiðing af slíkum embættisafglöpum (sem margir reyndu að benda ráðherranum á í tíma ) - afleiðingin hlýtur að verða afsögn ráðherrans. Annað væri staðfesting á því að við höfum ekkert lært af Rannsóknarskýrslu Alþingis. Því vil ég ekki trúa,“ segir Sigurður Ingi á bloggsíðu sinni.


Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert