Kvartaði yfir undirskriftasöfnun

Arnar Guðmundsson
Arnar Guðmundsson

Arnar Guðmundsson, blaðamaðurinn sem sendi Persónuvernd erindi í gær vegna undirskriftasöfnunar á síðunni kjosum.is, hætti sem aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra á mánudaginn. 

Söfnunin hófst síðasta föstudagskvöld, 11. febrúar en Arnar lét af starfinu aðstoðarmanns mánudaginn 14. febrúar. Hann lagði svo formlega fram erindi til Persónuverndar í gær líkt og rakið er í endurbirtum bréfaskiptum hans og Persónuverndar á vef Eyjunnar.

Fram kemur á vef iðnaðarráðuneytisins að Kolbeinn Marteinsson hafi tekið við sem aðstoðarmaður Katrínar en hann staðfesti í samtali við mbl.is að það hefði hann gert þriðjudaginn 15. febrúar.

Fram kom á vef Eyjunnar í gær að Arnar hafi verið ráðinn til Fjárfestingarstofu.

Ekki náðist í Arnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert