Skipstjórinn feilreiknaði kúrs

Goðafoss á strandstað. Myndin er frá norsku siglingastofnuninni.
Goðafoss á strandstað. Myndin er frá norsku siglingastofnuninni.

Skipstjóri Goðafoss viðurkennir að hafa feilreiknað kúrsinn og farið útaf réttri leið með þeim afleiðingum að skipið tók niðri á rifi. Þá hafi hann verið einn í brúnni þegar slysið átti sér stað. Aftenposten í Noregi greinir frá þessu í kvöld á vefsíðu sinni.

Segir í frétt Aftenposten að ekki leiki grunur um að hann hafi sofnað við stýri eða að hann hafi verið ölvaður.

Frétt Aftenposten.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert