Margir vilja skoða Goðafoss

Margir hafa gert sér ferð til að skoða Goðafoss á …
Margir hafa gert sér ferð til að skoða Goðafoss á strandstað. mynd/Guðjón Ólafsson

Goðafoss, skip Eimskips, sem strandaði við Hvaler í Óslóarfirði á fimmtudagskvöld, laðar nú að sér ferðamenn og hafa margir gert sér ferð á svæðið til að skoða skipið á strandstað. 

Skipið strandaði á Kvernskjær, milli Asmaløy og Kirkøy. Margir hafa lagt leið sína til Håbu á Asmaløy. Hefur sveitarstjórn Hvaler sent frá sér tilkynningu þar sem vakin er athygli á að Håbu sé lítið samfélag og vegir og bílastæði ráði illa við marga gesti. Er því mælst til þess að fólk fari frekar til  Skipstadsand á Asmaløy eða Rødshue á Kirkøy en þaðan sjáist skipið vel.

Talið er hugsanlegt að Goðafoss verði á strandstað í nokkrar vikur en ekki verið reynt að ná skipinu á flot fyrr en búið er að afferma það og dæla olíu úr tönkum þess. 

Vefur Hvaler

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert