Fer vonandi í slipp í næstu viku

Goðafoss við akkeri við eyjuna Styre. Myndin er af vef …
Goðafoss við akkeri við eyjuna Styre. Myndin er af vef norsku siglingastofnunarinnar.

Vonir standa til þess að hægt verði að koma Goðafossi, flutningaskipi Eimskips, í slipp um miðja næstu viku, að sögn Ólafs Hand, upplýsingafulltrúa félagsins.

Tryggingafélag Eimskips metur tilboð frá slippstöðvum áður en ákvörðun um hvert farið verður með skipið er tekin, en hugsanlegt er að það verði flutt til Póllands.

Dæling úr olíutönkum skipsins stóð enn yfir í gærkvöldi, en annar tveggja tanka sem tæma á er nú tómur og dæling úr hinum vel á veg komin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert