Hannar föt úr forhúð

Hönnuðurinn Sruli Recht

Hönnuðurinn Sruli Recht sendi nýverið frá sér nýja heilstæða fatalínu, When gravity fails. Tískubloggsíðurnar fara fögrum orðum um Sruli en hann kynnti nýverið línuna á sölusýingu í París.

Sruli notar aðallega íslensk hráefni í föt sín svo sem hesta- og hreindýraskinn auk gömlu góðu sauðkindarinnar. Sruli hefur markað sér sérstöðu að því leiti að hann hannar nýja áferð á leður.

Sruli hefur búið hér á landi um nokkurt skeið en hægt er að forvitnast um hönnun kappans í nýjasta þætti af Rokki og Rúllum hér á Mbl Sjónvarpi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert