Tekur ekki þátt í stjórnarsamstarfi án kosninga

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/GSH

Það er óhugsandi að Sjálfstæðisflokkurinn taki þátt í ríkisstjórnarsamstarfi við núverandi aðstæður, án undangenginna kosninga. Þetta segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum.

Í ályktuninni segir að þverrandi lífsorka núverandi ríkisstjórnar fari nú öll í að viðhalda sjálfri sér. Á meðan flæði undan fylgi hennar bæði hjá þingi og þjóð.

 „Áhugasvið þessarar hálfdauðu ríkisstjórnar virðist nú einkum takmarkast við tvennt: annars vegar aðlögunarviðræður við Evrópusambandið, sem mikill meirihluti þjóðarinnar vill alls ekki aðlagast og hins vegar að kippa grunninum undan rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi, sem nú skila þjóðinni um 35% af öllum gjaldeyristekjum hennar og eru helsta grunnstoð atvinnulífs í landinu. Nýjasta dæmið um þetta er ákvörðun um úthlutun makrílkvóta. Höggið, sem er í anda fyrningaleiðar, er mikið fyrir samfélagið í Eyjum og eru tapaðar tekjur um 1250 milljónir. Við svo búið má ekki standa.

Núverandi ríkisstjórn verður að víkja áður en hún vinnur þjóðinni meira tjón en orðið er. Það er óhugsandi að Sjálfstæðisflokkurinn taki þátt í ríkisstjórnarsamstarfi við núverandi aðstæður, án undangenginna kosninga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert