Íris tekur sæti

Íris Lind Sæmundsdóttir, lögfræðingur.
Íris Lind Sæmundsdóttir, lögfræðingur.

Íris Lind Sæmundsdóttir hefur samþykkt að taka sæti í stjórnlagaráði, sem kemur saman í fyrsta skipti í næstu viku.

Fyrr í vikunni höfðu 24 af þeim 25 sem landskjörstjórn úthlutaði sæti í kosningu til stjórnlagaþings 27. nóvember sl. þekkst boð Alþingis um að taka sæti í stjórnlagaráði. 

Íris varð í 26. sæti í kosningum til stjórnlagaþings og náði því ekki kjöri en þar sem Inga Lind Karlsdóttir þáði ekki sæti í stjórnlagaráði var leitað til Írisar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert