Vigdís styður samninginn

Vigdís Finnbogadóttir
Vigdís Finnbogadóttir Árni Sæberg

„Mér er afar umhugað um framtíð þjóðarinnar og að vel athuguðu máli vil ég upplýsa að ég hef farið á kjörstað, vegna fjarveru næstu daga, og greitt atkvæði mitt með jáyrði, samningnum í vil,“ segir Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti í yfirlýsingu. 

Yfirlýsing Vigdísar er svohljóðandi:

„Að gefnu tilefni ...

Ég hef ekki lagt í vana minn að lýsa afstöðu minni til umdeildra mála, en nú hefur mikill fjöldi fólks innt mig eftir skoðun minni á þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem nú fer í hönd. Mér er afar umhugað um framtíð þjóðarinnar og að vel athuguðu máli vil ég upplýsa að ég hef farið á kjörstað, vegna fjarveru næstu daga, og greitt atkvæði mitt með jáyrði, samningnum í vil.

Í afstöðu minni hef ég ekki síst haft í huga þau gömlu sannindi að deilur beri að leysa með samningum. Það er aðal friðsamra þjóða, en ekki að heyja langvinn stríð um óljós efni. Það er þannig sem traust myndast milli þjóða. Frá mínu sjónarmiði séð leikur enginn vafi á því að orðstír okkar Íslendinga bíður mikinn skaða af áframhaldandi deilum, átökum fyrir dómstólum og flóknum lagaþrætum. Þá er mikið í húfi að við Íslendingar snúum sem fyrst baki við sundrungu og deilum og stöndum heldur saman að því að byggja upp heildstæða og farsæla framtíð fyrir land og lýð.

Þess kann ég best að óska Íslendingum.
 
Vigdís Finnbogadóttir“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert