Flestir búast við íslensku Nei

Icesave-lögunum mótmælt.
Icesave-lögunum mótmælt. Kristinn Ingvarsson

Flestir erlendu fjölmiðlanna sem gera Icesave-kosningunni skil telja að íslenskur almenningur muni hafna samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag. Vísað er til nýjustu skoðanakannana þessu til stuðnings.

Anna Ringstrom, blaðamaður Reuters, bendir á að þrjár síðustu skoðanakannanir hafa bent til þess að samningnum verði hafnað og að meirihlutinn sé frá 52-57%.

Þá skrifar Andrew Ward, sérfræðingur Financial Times í málefnum Norðurlanda með aðsetur í Stokkhólmi, að ef samningnum verði hafnað setji það framtíð vinstristjórnarinnar í töluverða óvissu.

ESB-umsókin yrði í uppnámi

Ward ræðir við dr. Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing.

„Öll efnahagsstefna stjórnvalda byggir á að því að koma samskiptum við alþjóðasamfélagið í eðlilegt horf og í því felst að leysa Icesave-deiluna og þrýsta á aðild að Evrópusambandinu,“ segir Eiríkur Bergmann í samtali við FT. „Verði útkoman nei verður mjög erfitt fyrir stjórnina að halda áfram á sömu braut.“

Ward bendir á að vextir nýja samningsins séu betri en þess fyrri en að fjöldi Íslendinga sé alfarið á móti því að verða sendur reikningur vegna mistaka bankamanna og eftirlitsaðila með fjármálamörkuðum.

Ómar R. Valdimarsson blaðamaður skrifar fyrir alþjóðlegu viðskiptafréttaveituna Bloomberg.

Hann tók verslunareigandann Stefán Gunnarsson tali í miðborg Reykjavíkur.

„Það stendur hvergi að Íslandi sé lagalega skylt að borga fyrir þetta fáránlega ævintýri Landsbankans. Komist dómstóll að þeirri niðurstöðu að við berum lagalega ábyrgð verður svo að vera. Þangað til er svarið: Nei takk,“ segir Stefán.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert