Á móti hernaði

Eitt þýsku herskipanna, sem nú liggja við Sundahöfn.
Eitt þýsku herskipanna, sem nú liggja við Sundahöfn. mbl.is/Sigurgeir

„Ég er friðarsinni og á móti hernaði í hvaða mynd sem er,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri í tilkynningu sem hann hefur sent frá sér vegna komu þýskra herskipa hingað til lands.

Hyggst Jón ekki  taka á móti yfirmönnum af herskipum þýska flotans sem liggja nú við Skarfabakka í Sundahöfn. 

„Ég lít ekki svo á að í því felist einhver óvirðing  við þetta fólk sem er hér í heimsókn núna.  Ég vil einfaldlega ekki  tengjast hernaðarbrölti.  Það er einlæg skoðun mín að Reykjavík eigi að vera borg friðarins. Íslendingar  eiga að sýna það í verki  að við erum herlaus þjóð. Við eigum ætíð að tala fyrir friði og mótmæla stríði manna á milli,“ segir Jón í yfirlýsingunni.

Jón lagði í desember til að herflugvélar fái ekki að lenda á Reykjavíkurflugvelli  nema þær séu að sinna hjálpar- eða björgunarstarfi.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert