Uppfylling fyrir Samfylkinguna

Sóley og Hanna Birna Kristjánsdóttir í sjónvarpssal eftir kosningarnar í …
Sóley og Hanna Birna Kristjánsdóttir í sjónvarpssal eftir kosningarnar í fyrra. Egill Helgason hlýðir á Sóleyju. Eggert Jóhannesson

Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG og fráfarandi varaforseti borgarstjórnar, segir Besta flokkinn í raun vera „uppfyllingarefni fyrir Samfylkinguna“. Besti flokkurinn hafi ekki reynst það nýja forystuafl sem hann gaf sig út fyrir að vera.

En Sóley lét af embættinu fyrir páska um leið og Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, hætti sem forseti borgarstjórnar.

Sóley skýrir ákvörðun sína svo:

„Þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur meirihlutinn ekki sýnt í verki nokkurn einasta vilja til þess að hlusta á sjónarmið annarra en eru um borð í þessum eina meirihluta. Það sem mér þykir verst er að borgarbúar kusu ný og breytt vinnubrögð síðasta vor. Borgarbúar kusu sex nýja borgarfulltrúa frá flokki sem gaf sig út fyrir að ferskur, hugrakkur, skapandi og kjarkmikill,“ segir Sóley og á við Besta flokkinn. 

„Þessi flokkur er hins vegar ekkert annað en uppfyllingarefni fyrir Samfylkinguna, staðlaðan og gamaldags stjórnmálaflokk. Það sem í raun og veru gerðist er að stór hluti borgarbúa kaus sig yfir sig Samfylkinguna án þess að ætla sér það.

Meirihlutinn hefur hvorki áhuga á að ræða við borgarfulltrúa minnihlutans né aðra borgarbúa um þau verkefni sem hann er að fást við hverju sinni,“ segir Sóley og bendir á að VG hafi ekki fengið að koma að breytingum í skólamálum eins og óskað hafi verið eftir.

Vinstri grænir útilokaðir

„Eitt dæmi um það og hluti af þeirri nýju pólitísk sem átti að fara að ástunda var að allir flokkar ættu fulltrúa í þeim starfshópum sem tækju til starfa. En þegar starfshópur um þessi mál var settur á laggirnar áttu Vinstri grænir ekki fulltrúa þar heldur var þar aðeins fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Það hefði flækt málin ef við hefðum tekið þátt enda höfum við verið mun tortryggnari á þessar aðgerðir en aðrir flokkar.

Ég veit ekki hvað olli því að þau kusu að hafa okkur ekki með en líklegt er að það hefði krafist meiri málamiðlana og lengri tíma. Samráðsstjórnmál gera það. Þannig að það hefur aldrei verið hlustað á sjónarmið Vinstri grænna í þessari vinnu,“ segir Sóley Tómasdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert