Landhelgisgæslan ekki flutt í bráð

mbl.is/ÞÖK

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund, að Landhelgisgæslan verði ekki flutt á Miðnesheiði á næstunni vegna mikils kostnaðar. Fram kom í fréttum Útvarpsins, að flutningurinn myndi kosta um 700 milljónir króna.

Ögmundur kynnti á ríkisstjórnarfundi skýrslu um hagkvæmnisathugun á flutningi starfsstöðvar Landhelgisgæslunnar á Miðnesheiði. Hann sagði við Útvarpið, að skýrslan sýndi að flutningur stofnunarinnar til Suðurnesja væri ekki skynsamleg ráðstöfun til skamms tíma litið.

Talsverður kostnaður myndi falla til vegna flutningsins og einnig væri rekstarkostnaðurinn umtalsvert hærri á Suðurnesjum en í Reykjavík. 

Ögmundur sagði, að það kynni  að vera hyggilegt til lengri tíma litið að hugsa til slíks flutnings. Stjórnvöld myndu hins vegar gefa sér tíma til að komast að skynsamlegri niðurstöðu og ekki yrði rasað um ráð fram.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert