Strætisvagnabílstjórar á hraðferð

mbl.is/Hag

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist hafa staðið strætisvagnabílstjóra að hraðakstri í nokkur skipti. Segir lögreglan að atvinnubílstjórar eigi, rétt eins og aðrir ökumenn, að vita betur. Hefur ábendingum verið komið á framfæri við forsvarsmenn Strætós.

Að sögn lögreglu hefur hátt brotahlutfall ökumanna vakið nokkra athygli við hraðamælingar í íbúðahverfum á höfuðborgarsvæðinu, en oftar ekki er það meira en 40%.

Lögreglan segir ljóst að ökumenn þurfi að taka sig á en þeir sem í hlut eigi séu á öllum aldri og af báðum kynjum. Svokallaðir atvinnubílstjórar séu þar ekki undanskildir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert