Hóta allsherjarverkfalli 25. maí

Kjaraviðræður hafa staðið yfir lengi en ekki skilað árangri.
Kjaraviðræður hafa staðið yfir lengi en ekki skilað árangri. mbl.is/Árni Sæberg

Guðmundur Gunnarsson, fráfarandi formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að allsherjarverkfall muni hefjast 25. maí nk. fallist Samtök atvinnulífsins ekki á á kröfu samtaka launamanna um eins árs samning, með sömu afturvirkni og hafi verið í Elkem samningunum og 4,5% launahækkun.

Hann segir í tilkynningu, sem hann sendi fjölmiðlum, að í gær hafi SA boðið upp á áframhaldandi þref næstu vikurnar um breytingar á launkerfum og um fyrirvara LÍÚ. Á þetta fallist launamenn ekki. Hann segir að samtök launamanna á almennum vinnumarkaði hafi sýnt mikil heilindi og mikla þolinmæði gagnvart vandræðagang SA og LÍÚ.

Tilkynning Guðmundar er svohljóðandi:

„Á yfirstandandi 17. þingi Rafiðnaðarsambandsins er m.a. fjallað um nýja stöðu í kjarasamningum. Miðvikudaginn 13. apríl hafnaði SA enn einu sinni að draga tilbaka þá fyrirvara sem samtökin höfðu sett um að forsenda kjarasamninga væri ásættanlega niðurstöðu í kvótamálum að mati LÍÚ. En á þessum forsendum höfðu þeir dregið gerð kjarasamninga mánuðum saman.

Þar var um var að ræða tilboð um 3ja ára kjarasamning með 11,7% kostnaðarauka, ekki var búið að ganga frá breytingum á launakerfum og kostnaðarauka vegna þess, en fyrir lá að sá kostnaðarauki yrði um 1 – 2%. Föstudaginn 15. apríl höfnuðu þeir að standa áður gefið loforð um að gera 6 mánaða skammtímasamning nema að í honum væru ákvæði um fyrirvara LÍÚ.

Þremur dögum síðar gengur SA til samninga við 4 stéttarfélög, þar á meðal RSÍ, með 15,7% launahækkun, og þar af eru 13,8% það sem kalla má almenna launahækkun og 2% vegna bónuskerfa sem byggja á ábataskiptakerfum. Jafnframt var samið um afturvirkni til 1. janúar 2011 í stað 1. mars, eða fimm mánuði í stað 3ja mánaða. Í þeim samning voru engir fyrirvarar frá LÍÚ. Þessi samningur var alfarið í samræmi við kröfur iðnaðarmannafélaganna og Verkalýðsfélagið á Akranesi féll frá öllum sínum sérkröfum.

Í gær fór fram einhliða gengdarlaus áróður m.a. í fréttastofu allra landsmanna af hálfu SA um þessi mál. Þar var farið með rangt mál, m.a. ekki minnst á að enn væri inn í þeim samningum sem SA væri að bjóða ennþá væru sömu fyrirvarar af hálfu LÍÚ. Gert var lítið úr Elkem samningnum, en þar eru launahækkanir þar skiptast þannig að á þessu ári koma 8,5%, árið 2012 koma 3,3% og árið 2013 koma 3%, samtals eru þetta 15,7%.

SA bauð í gær upp áframhaldandi þref næstu vikurnar um breytingar á launkerfum og um fyrirvara LÍÚ. Á þetta fallast launamenn ekki. Samtök launamanna á almennum vinnumarkaði hafa sýnt mikil heilindi og mikla þolinmæði gagnvart vandræðagang SA og LÍÚ.

Þess vegna hafa samtök launamanna sett fram kröfu um eins árs samning með sömu afturvirkni og var í Elkem samningnum og 4,5% launahækkun. SA og LÍÚ geti þá athugasemdalaust af hálfu launamanna haft svigrúm til þess að ljúka sínum málum og síðan megi í haust hefja vinnu við gerð 3ja ára samnings sem taki við í janúar á næsta ári. Ef SA fellst ekki á þessa leið hefst allsherjarverkfall 25 maí næstkomandi.“

Guðmundur Gunnarsson.
Guðmundur Gunnarsson. mbl.is/Frikki
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert