Kortleggja hjólreiðar á vefnum

Sambúð gangandi vegfarenda og hjólandi á hjólastígum í höfuðborginni getur …
Sambúð gangandi vegfarenda og hjólandi á hjólastígum í höfuðborginni getur stundum verið flókin. Nýir stígar bæta vonandi úr. mblis/Kristinn Ingvarsson

Reykjavíkurborg hefur opnað nýjan vef til að kortleggja hjólaleiðar til og frá vinnu, þar sem jafnframt er hægt að koma með ábendingar um úrbætur og mæla vegalendir.

 Hægt er að smella hér til að opna vefinn. 

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að á vefnum geti fólk bent á vástaði, t.d. hvar vanti göngu- og hjólreiðastíga, hvar bifreiðar fari of hratt og skrifað aðrar athugasemdir. Einnig er hægt að sækja hjólaferil í GPXskrá fyrir GPS tæki.

Markmiðið með vefnum er að sjá hvar fólk vill hjóla, hvar það telur sig öruggt og hvar óöruggt. Þeir sem nota vefinn taka um leið þátt í því að bæta aðgengi og upplifun hjólreiðafólks. Upplýsingarnar muni nýtast við að skipuleggja Hjólaborgina Reykjavík en vefurinn er byggður á borgarvefsjá.

Búið að skipuleggja 10 kílómetra af hjólastígum

 Í tilkynningunni er haft eftir Evu Einarsdóttur, formanni Íþrótta- og tómstundaráðs, að búið væri að skipuleggja tíu kílómetra af hjólastígum í borginni og fyrsti áfangi hjólreiðaáætlunar því litið dagsins ljós. Hraðleið frá Laugardal að Ægisíðu ásamt hjóla- og göngubrú yfir Elliðaárósa hefði einnig verið hönnuð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert