Þjóðverjinn fundinn

TF-GNÁ kemur með þýska ferðamanninn til Reykjavíkur í kvöld.
TF-GNÁ kemur með þýska ferðamanninn til Reykjavíkur í kvöld. mbl.is/Eggert

Þjóðverjinn sem leitað hefur verið að norðan Vatnajökuls í dag er fundinn heill á húfi. Það var TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, sem fann manninn við Háöldur, austan við Hofsjökul. Var hann í ágætu ástandi miðað við aðstæður, en kaldur, svangur og hrakinn.

Þyrlan flutti manninn til Reykjavíkur og lenti um kvöldmatarleytið. Um 60 björgunarsveitarmenn voru við leit á svæðinu þegar hann fannst og fleiri á leiðinni. Búið var að kalla út sveitir af Suðurlandi, Norðurlandi, höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum því allt kapp var lagt á að finna manninn fyrir myrkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert