2/3 vilja innkalla kvótann

Könnunin var gerð 9.-12. maí.
Könnunin var gerð 9.-12. maí.

Um tveir af hverjum þremur vilja að stjórnvöld afturkalli kvótann, hann verði í eigu ríkisins eða greidd sé leiga fyrir afnotarétt sem nemur markaðsverðmæti hans.  Þetta kemur fram í könnun MMR.

Í könnun MMR á afstöðu almennings til ráðstöfunar fiskveiðiheimilda kom í fram að enn er mikill stuðningur við hugmyndir sem halla í þá átt að ríkið afturkalli fiskveiðiheimildir, fari sjálft með eignarhald eða innheimti leigu fyrir afnotarétt sem endurspegli markaðsverðmæti kvótans. Samskonar könnun var framkvæmd af MMR í febrúar á þessu ári og voru niðurstöður beggja kannana mjög áþekkar nema nú voru töluvert fleiri sem tóku afstöðu til spurninganna.

69,7% sögðust hlynt þeirri fullyrðingu að þeir sem fá úthlutað kvóta ættu að greiða leigu til ríkisins sem endurspeglar markaðsverðmæti kvótans.

66,6% sögðust hlynt því að kvótinn ætti að vera í eigu ríkisins.  64,9% sögðust hlynnt þeirri fullyrðingu að stjórnvöld afturkalli með einum eða öðrum hætti gildandi fiskveiðiheimildir (kvóta) og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum.

31,4% tóku undir þá fullyrðingu að hagsmunir núverandi handhafa kvótans og þjóðarinnar í heild væru sameiginlegir. Þá lýstu 17,4% sig hlynnt þeirri fullyrðingu að þeir sem fá úthlutað kvóta ættu eingöngu að greiða leigu til ríkisins sem nemur rekstrarkostnaði þeirra ríkisstofnana sem þjónusta sjávarútgerðina.

15,1% tóku undir þá fullyrðingu að núverandi handhafar kvótans ættu að fá að halda honum áfram óskertum. 7,4% sögðust styðja að þeir sem fá  úthlutað kvóta ættu að fá að ráðstafa honum að vild, þar með talið selja, leigja og veðsetja.

Líkt og í síðustu könnun frá febrúar 2011 reyndist nokkur munur á afstöðu svarenda til ráðstöfunar fiskveiðiheimilda eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka. Til að mynda voru 94,8% Samfylkingarfólks og 86,2% Vinstri grænna hlynnt því að stjórnvöld afturkölluðu gildandi fiskveiðiheimildir og úthlutuðu þeim að nýju með breyttum reglum, samanborið við 35,6% sjálfstæðismanna og 55,3% framsóknarmanna. Stuðningur við að þeir sem fengju úthlutað kvóta ættu að fá að ráðstafa honum að vild reyndist aftur á móti lítill meðal stuðningsmanna allra flokka.  En 17,0% sjálfstæðismanna, 13,5% framsóknarmanna, 3,9%  Samfylkingarfólks og 2,6% Vinstri grænna sögðust hlynntir því að þeir sem fengju úthlutað kvóta ættu að fá að ráðstafa honum að vild, þar með talið selja, leigja og veðsetja.

Ekki var í könnunni spurt um mat svarenda á frumvörpum sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert