Fljótandi lúxus

Poesia í Akureyrarhöfn á síðasta ári.
Poesia í Akureyrarhöfn á síðasta ári.

Skemmtiferðaskipið MSC Poesia kemur til Akureyrar á morgun og siglir þaðan til Ísafjarðar og Reykjavíkur. Um borð eru tæplega 2500 farþegar og 960 manna áhöfn.

Skipið e í eigu MSC útgerðarinnar á Ítalíu en  TVG-Zimsen  mun þjónusta það  hér á landi.

Jóhann Bogason, deildarstjóri sérverkefna hjá TVG Zimsen, segir að skipið sé fljótandi lúxushótel. Á sundlaugadekkinu séu brýr og hvítfyssandi fossar.  Þá sé þar bæði vínsmökkunarbar og sérstakur mojito-bar.  Fjöldi verslana er í skipinu sem og leikhús sem tekur 1300 gesti. Þar er einnig spilavíti, sem er opið allan sólarhringinn, og fjórir veitingastaðir með mismunandi matseðlum.

Uppselt er í flestallar skoðunarferðir sem í boði eru á þeim stöðum sem skipið hefur viðkomu á.

 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert