Vigdís verðlaunuð

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis afhenti Vigdísi Finnbogadóttur verðlaunin í …
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis afhenti Vigdísi Finnbogadóttur verðlaunin í dag.


Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2011 hlýtur Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Greint var frá þessu á hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag.

Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum. Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur umsjón með hátíðinni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar.

Jóhanna Sigurðardóttir flutti hátíðarræðu við þetta tilefni og Sólveig Pétursdóttir, formaður undirbúningsnefndar afmælis Jóns Sigurðssonar, kynnti margmiðlunarsýningu sem gerð er í tilefni 200 ára afmælisársins
 
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta, en Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála, að því er segir í tilkynningu.

Í forsetatíð sinni efldi Vigdís og styrkti vináttu milli Íslands og Danmerkur
sem ötull talsmaður menningarsamskipta þjóðanna, að því er fram kemur í tilkynningu.

„Forusta hennar í stjórn sjóðsins Den Nordatlantiske Brygge tryggði endurbyggingu „Bryggjunnar“ þar sem síðan hefur verið haldið á loft menningu Íslands í Kaupmannahöfn. Fyrir það hlýtur Vigdís Finnbogadóttir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2011."
 
Verðlaunin hafa áður hlotið:
 
2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur.
2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur.
2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert