Fjórðungur ber lítið traust til Landlæknisembættisins

Skrifstofur Landlæknisembættisins.
Skrifstofur Landlæknisembættisins.

Þriðjungur landsmanna (32,3%) ber mikið traust til Landlæknisembættisins en rúmur fjórðungur (26,7%) ber hins vegar lítið traust til þess. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 25% bera frekar mikið traust og 7,3% sögðust bera mjög mikið traust til til embættisins að sögn MMR.

Þá sögðust 41,1% af þeim sem tóku afstöðu hvorki bera mikið né lítið traust til embættisins.

17,2% sögðust bera frekar lítið traust og 9,5% sögðust bera mjög lítið traust til Landlæknisembættisins bera mjög mikið traust til til embættisins.

Nokkur munur á afstöðu fólks

MMR segir að nokkur muni hafi verið á afstöðu eftir aldri, menntun, starfstétt og tekjum. Af þeim sem tóku afstöðu voru 30,5% þeirra sem voru í aldurshópnum 50-67 ára sem sögðust bera lítið traust til embættisins borið saman við 21,2% þeirra sem voru í aldurshópnum 18-29 ára.

Þá voru 18,7% sérfræðinga sem tóku afstöðu sem sögðust bera lítið traust til Landlæknisembættisins borið saman við 38% iðnarmanna.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 21,1% sem hafa hæstu tekjurnar (800 þúsund eða hærra) bera lítið traust til embættisins borið saman við 32,0% þeirra sem eru með 250-399 þúsund í heimilistekjur á mánuði.

Spurt var: „Hversu mikið eða lítið traust berð þú til Landlæknisembættisins?“

Svarmöguleikar voru: Mjög lítið, frekar lítið, hvorki mikið né lítið, frekar mikið, mjög mikið og veit ekki/vil ekki svara.

Samtals tóku 93,2% afstöðu til spurningarinnar.

Könnunin var framkvæmd dagana 9.-15. júní 2011 og var heildarfjöldi svarenda 867 einstaklingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert