70% dýrara að keyra hringinn

Umferð um Suðurlandsveg.
Umferð um Suðurlandsveg. mbl.is/Ómar

Fjölskylda sem ætlar að keyra hringveginn í sumar þarf að borga um 70% meira fyrir að keyra hann nú en fyrir 4 árum.Þetta kemur fram í bloggi Tryggva Þórs Herbertssonar, alþingismanns, á Eyjunni.

Segir hann að gjaldeyrishöft og ofurskattar leiða því til þess að í sögulegu samhengi verður vísað til sumarsins sem nú er að hefjast sem: „ferðasumarsins litla 2011“.

„Samkvæmt útreikningum FÍB í febrúar 2010 nam eldsneytisreikningur heimilanna vegna fjölskyldubílsins um 275 þús. kr. á síðasta ári. Þar af voru skattar 136 þús. kr. skattar. Sambærilegir útreikningar fyrir árið 2011 eru 453 þús. kr. og þar af eru skattar 225 þús. kr. Ráðstöfunartekjur meðalheimilis, og þar með neysla, minnka því um 178 þús. kr. vegna hærra eldsneytisverðs. Auk þessa hækkar vöruverð vegna aukins flutningskostnaðar.

Í júní kostaði lítrinn af bensíni 124 krónur og þótti mörgum nóg um. Núna kostar lítrinn um 234 krónur.  Hann hefur því hækkað um nærri 89% á síðustu 4 árum. Skattar á bensínlítra voru um 64 krónur árið 2007 en 114 krónur nú. Um 70% hækkunarinnar er því vegna hærri skatta. Afleiðingarnar af þessum hækkunum eru að umferð á hringveginum hefur dregist saman um tæp 9% það sem af er ári og um 10% síðan í maí í fyrra.

Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi ef kaupmáttur fólks hefðu ekki dregist saman í kjölfar efnahagskreppunnar miklu. Um 28 þúsund störf hafa tapast og starfshlutföll margra hefur minnkað," skrifar Tryggvi Þór á bloggvef sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert