Unga konan útskrifuð í dag

Hótel Frón við Laugaveg
Hótel Frón við Laugaveg Morgunblaðið/Árni

Unga konan sem grunuð er um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón verður útskrifuð af sjúkrahúsi í dag.

„Það er væntanlega verið að útskrifa hana núna og ef allt gengur eftir þá verður hún færð til yfirheyrslu,“ sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is fyrir stundu.

Að loknum yfirheyrslum verður unga konan að öllum líkindum flutt á Litla-Hraun í einangrun.

Að sögn Friðriks Smára er rannsókn málsins vel á veg komin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert