Telur líkur á öðru hlaupi

Myndin er af vestari katlinum.
Myndin er af vestari katlinum. Ljósmynd/ Jón G. Sigurðsson

 Jón G. Sigurðsson flugmaður segir að vestari ketill Skaftárkatla hafi lagst mikið saman, en litlar breytingar sé að sjá á eystri katlinum. Hann segist þó eiga von á hlaupi úr honum fyrr en seinna.

Jón flaug síðast fyrir viku yfir Grímsvötn og Skaftárkatla. Mjög góðar aðstæður voru til að skoða katlana í dag.

„Vestari ketilinn hefur lagst mun meira saman frá því fyrir viku og má draga þá ályktun að hann hafi verið að hlaupa áfram í liðinni viku og gefið þessa auknu leiðni fyrrihluta vikunnar.

Eystri ketillinn er enn í líkingu við það sem hann var fyrir viku nema hvað svo virðist sem hækkað hafi í honum og ummál brotalínu hans stækkað, þá eru greinileg merki um að miðja hans hafi verið að brotna upp ef dæma má af því hversu kurlaður ísinn er í miðju hans,“ segir Jón, sem segist vera þeirrar skoðunar að hlaup komi úr eystri katlinum fyrr en seinna.
 

Myndin sýnir er eystari ketillinn sem ekki hefur enn hlaupið …
Myndin sýnir er eystari ketillinn sem ekki hefur enn hlaupið úr. Ljósmynd/ Jón G. Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert