Í farbanni til 1. september

Frá Hótel Fróni, þar sem barnið fannst látið.
Frá Hótel Fróni, þar sem barnið fannst látið. Árni Sæberg

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað konu, sem skildi nýfætt barn sitt eftir í ruslageymslu við Hótel Frón í síðasta mánuði, í farbann til 1. september næstkomandi.

Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns miðar rannsókn málsins vel.

„Við erum aðallega að bíða eftir niðurstöðum úr lífsýnarannsóknum, sem voru sendar utan, til Svíþjóðar,“ segir Friðrik Smári.

Búist er við að málið verði sent til ríkissaksóknara í þessum mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert