Grilli og gaskútum stolið

Gaskútar halda áfram að freista bíræfinna þjófa.
Gaskútar halda áfram að freista bíræfinna þjófa. mbl.is/Sverrir

Enn er verið að stela gaskútum á höfuðborgarsvæðinu en allnokkur slík mál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar undanfarnar vikur. Eigendur gaskúta ættu því að gera ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þeir sem eru með gaskúta á fellihýsum sínum.

Sjaldgæfara er hins vegar að gasgrillum sé stolið en sú var samt raunin í gær þegar grill var tekið ófrjálsri hendi af sólpalli við hús í Grafarvogi, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert