Delta stefnir á að fljúga áfram til Íslands

Farþegaþota Delta Air Lines af gerðinni Boeing 757.
Farþegaþota Delta Air Lines af gerðinni Boeing 757.

Á heimasíðu bandaríska flugfélagsins Delta er hægt að bóka flug milli Keflavíkur og New York í júní og júlí á næsta ári. Upplýsingafulltrúi fyrirtækisins vill hins vegar ekki staðfesta við Túrista að félagið ætli sér að halda Íslandsflugi sínu áfram næsta sumar. Hún segir að sumaráætlun fyrirtækisins verði kynnt í lok mánaðarins eða í byrjun þess næsta og þá eigi línur að skýrast.

Þegar Delta hóf flug til Íslands í byrjun júní í ár var tilkynnt að félagið ætlaði sér að fljúga á milli Keflavíkur og New York fram í lok október.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert