Fagna erlendri fjárfestingu

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.
Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Ungir sjálfstæðismenn vilja að allar takmarkanir á fjárfestingum erlendra aðila hérlendis verði felldar brott. „Það er mikilvægt fyrir Ísland að fá nýtt fjármagn inn í landið og því ber að taka öllum erlendum fjárfestingum fagnandi,“ segir í ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS).

Í ályktuninni segir orðrétt:

„Hvort sem eigendur fyrirtækja eða fasteigna eru íslenskir eða erlendir þurfa þeir að sjálfsögðu að fara að lögum og reglum, svo sem skipulagslögum og lögum um umhverfismat.

Ungir sjálfstæðismenn hafna öllum hugmyndum um að það skilyrði eigi að vera fyrir fjárfestingu erlendra aðila að Íslendingar geti fjárfest með sambærilegum hætti í heimalandi viðkomandi.

Æskilegt er að sem flest ríki ýti úr vegi takmörkunum á fjárfestingum, en meiri hagsmunir eru fólgnir í því fyrir Ísland að útlendingar geti fjárfest hérlendis, heldur en Íslendingar erlendis. Íslenskir fjármagnseigendur verða að vera í stakk búnir til að keppa við erlent fjármagn og eiga ekki að geta falið sig undir verndarvæng stjórnvalda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert