Sá þriðji neitaði sök

Davíð Freyr og Ríkharð koma til aðalmeðferðar málsins.
Davíð Freyr og Ríkharð koma til aðalmeðferðar málsins. mbl.is

Þriðji maðurinn sem ákærður er í Black Pistons-málinu svonefnda neitaði alfarið sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir tveir sem einnig eru ákærðir tóku einnig afstöðu til framhaldsákærunnar í málinu og neituðu einnig sök.

Eins og komið hefur fram eru Ríkharð Júlíus Ríkharðsson og Davíð Freyr Rúnarsson ákærðir fyrir að svipta ungan mann frelsi sínu og ráðast ítrekað á hann á um hálfum sólarhring, eða þar til fórnarlambið slapp frá þeim. Aðalmeðferð í málinu var hafin þegar fórnarlambið upplýsti um þátt þriðja mannsins, Brynjars Loga Barkarsonar. Þurfti því að gefa út framhaldsákæru og var tekin afstaða til hennar í morgun.

Áður hafði Davíð játað sök að hluta, þ.e. fyrir að hafa ráðist að manninum unga. Hann neitaði því hins vegar að honum hafi verið haldið gegn vilja sínum. Ríkharð neitaði hins vegar sök.

Þriðji maðurinn, Brynjar, er aðeins sautján ára. Hann átti upphaflega að koma fyrir dóminn sem vitni, eða þar til fórnarlambið í málinu lýsti því hjá lögreglu að hann hefði átt hlut að máli.

Brynjar er einnig ákærður fyrir fíkniefnabrot og neitaði hann einnig sök í þeim ákærulið. Sagði Brynjar að ekki hefði verið um fíkniefni að ræða heldur íblöndunarefni.

Aðalmeðferð í málinu heldur svo áfram 12. október næstkomandi og er þá vonast til að klára málið.

Líkt og komið hefur fram eru Ríkharð og Davíð ákærðir fyrir að svipta ungan mann frelsi og ráðast ítrekað á hann á um hálfum sólarhring, eða þar til fórnarlambið slapp úr vörslu þeirra. Þegar tekin var afstaða til fyrri ákærunnar játaði Davíð sök að hluta en Ríkharð neitaði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert