Póstburðargjöld hækka um 7,8%

Íslandspóstur.
Íslandspóstur.

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur samþykkt beiðni Íslandspósts hf. um 7,8% hækkun gjaldskrár fyrir bréf innan einkaréttar.  Ástæða hækkunarinnar er kostnaðarhækkanir vegna kjarasamnings Íslandspósts og Póstmannafélags Íslands.

Íslandspóstur óskaði eftir heimild til að hækka gjöldin um 11,1%. Það var mat stofnunarinnar að tilgreindar forsendur Íslandspósts fyrir verðhækkun væru ekki að öllu leyti fyrir hendi til að stofnunin gæti samþykkt hækkunarbeiðni félagsins óbreytta. PFS telur efni standa til þess að samþykkja allt að 7,8% hækkun gjaldskrár einkaréttarpósts til að mæta kostnaðarauka vegna kjarasamninga á grundvelli framlagðra gagna um kostnaðarþróun í einkaréttarþjónustu Íslandspósts. Í erindi Íslandspósts er þess getið að fyrirtækið hyggst hagræða í rekstri til að mæta hækkunarþörf vegna kjarasamninga. Hugsanlega kann því að verða til svigrúm fyrir fyrirtækið til að mæta ekki kostnaðarhækkunum vegna kjarasamninga að fullu með hækkun gjaldskrár.

Burðargjald fyrir 50 g bréf fer úr 90 kr. í allt að 97 kr. með þeirri hækkun sem nú er heimiluð. Þrátt fyrir þessa hækkun eru burðargjöld hér á landi fyrir póst innan einkaréttar ennþá með þeim lægstu á Norðurlöndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert