Skora á ráðherra um framkvæmd

Kirkjan í Gufudalssveit
Kirkjan í Gufudalssveit

Stjórn Fjórðungssambands Vestfjarða hefur sent innanríkisráðherra ályktun þar sem skorað er á innanríkisráðherra, Ögmund Jónasson að tryggja fjármagn til að hægt verið að vinna að samgönguframkvæmdum í Gufudalssveit og ítrekar að stefnumörkun taki mið af vilja sveitarstjórna og íbúa á Vestfjörðum.

Eftirfarandi er ályktunin:

„Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga samþykkti á fundi sínum hinn 27. september 2011 eftirfarandi ályktun til innanríkisráðherra.


56. Fjórðungsþing Vestfirðinga haldið í Bolungarvík hinn 2. og 3. september sl., samþykkti að forgangsverkefni í sóknaráætlun landshlutans yrðu samgöngumál.  Þingið lýsti einnig ánægju með störf innanríkisráðherra með því að kalla til samráðsvettvang,  þar sem skoðaðar væru með opnum huga lausnir í vali á vegstæði Vestfjarðavegar 60 um Gufudalssveit.   Niðurstaða innanríkisráðherra þar sem valin er leið um Ódrjúgháls og Hjallaháls og kynnt var á fundi samráðsvettvangs hinn 9. september sl. og á íbúafundi 20. september sl., olli því miklum vonbrigðum, enda svarar hún ekki ákalli íbúa um láglendisveg.  Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga ítrekar því samþykkt Fjórðungsþinga Vestfirðinga um stefnumörkun vestfirskra sveitarstjórna í samgöngumálum landshlutans, stefnumörkun sem endurspeglar vilja íbúa á Vestfjörðum.  


Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga hvetur innanríkisráðherra að leita áfram nýrra lausna sem endurspegli vilja íbúa og stefnumörkun sveitarstjórna á Vestfjörðum í samgöngumálum landshlutans.  Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga bendir á að nýjar upplýsingar sem komu fram á fundum samráðsvettvangs innanríkisráðherra kalli á gerð nýs umhverfismats og eða formats á umhverfisáhrifum samgönguframkvæmda í Gufudalssveit.  Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga skorar því á innanríkisráðherra að tryggja nauðsynlegt fjármagn til að hefjast þegar handa við þá vinnu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert