Hvetur til friðsamlegra mótmæla

Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson

Í bréfi sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sendi öllum sjálfstæðismönnum í kvöld segir hann að lögreglumenn hafi gefist upp á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og óljóst sé hvernig löggæslu við þingsetninguna verði háttað.

Bjarni hvetur því fólk til að sýna lögreglunni samstöðu með því að sýna störfum hennar virðingu.  Enn fremur kemur fram í bréfi Bjarna að sjálfsagt sé að halda stefnumálum sínum á lofti við þingsetninguna en biður fólk um leið að ganga friðsamlega til verks.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert