Stefnt að siglingu í Landeyjahöfn

Herjólfur siglir út úr Landeyjahöfn.
Herjólfur siglir út úr Landeyjahöfn. mbl.is/GSH

Stefnt er að því að Herjólfur sigli í Landeyjahöfn í vetur eftir því sem aðstæður leyfa.

Í tilkynningu frá  samstarfshópi um málefni siglinga til Vestmannaeyja segir, að ljóst sé að siglingar Herjólfs í höfnina séu vandkvæðum bundnar vegna stærðar skipsins, lögunar og djúpristu. Unnið sé að viðhaldsdýpkun sem þó sé mjög háð veðurfari.

Áframhald verður á samstarfi samgöngustofnana, rekstraraðila, ráðuneytis og Vestmannaeyjabæjar um lausnir til framtíðar. Meðal annars mun Vegagerðin láta kanna önnur skip sem gætu leyst Herjólf af hólmi.

Samráðshópurinn segist eindregið hvetja til þess að hönnun og smíði nýrrar ferju til siglinga í Landeyjahöfn verði flýtt sem kostur er, enda bendi flest til þess að samgöngur við Landeyjahöfn verði ekki áreiðanlegar fyrr en fengin verði ferja sem falli að þeim forsendum sem bygging hafnarinnar miðaði við.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert