Boðið upp á pönnukökur á Bessastöðum

Bessastaðir eru meðal staða þar sem fólk verður boðið velkomið …
Bessastaðir eru meðal staða þar sem fólk verður boðið velkomið í átakinu Inspired by Iceland mbl.is/Ómar Óskarsson

Iðnaðarráðherra kynnti í dag átakið „Íslendingar! Bjóðum heim“ sem er fyrsti þáttur þriggja ára markaðsverkefnis til að efla vetrarferðaþjónustu hérlendis. 

Átakið byggir á því að fá Íslendinga víðs vegar um land til þess að bjóða erlendum ferðamönnum að kynnast landi og þjóð í gegnum persónuleg heimboð, eða að taka þátt í daglegu lífi Íslendinga með öðrum hætti, samkvæmt fréttatilkynningu.

Nú þegar hafa um 40 Íslendingar um land allt skráð sig fyrir heimboðum í haust, en þeirra á meðal eru forsetahjónin, sem munu bjóða ferðamönnum upp á pönnukökur með rabarbarasultu og rjóma, ylræktað grænmeti og gönguferð um nágrenni Bessastaða. Þá mun Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra bjóða upp á gönguferð með viðkomu í setlauginni á Seltjarnarnesi og Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, mun bjóða upp á íslenskt sushi í Höfða.

Átakið verður starfrækt undir vörumerkinu Inspired by Iceland og verður heimasíðan helsti vettvangur þess. Þar geta Íslendingar boðið gestum að taka þátt í óhefðbundnum ævintýrum og ferðamenn geta skoðað hvað er í boði og þegið heimboð.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja allt að 300 milljónum árlega næstu þrjú ár í markaðsverkefni í vetrarferðaþjónustu, gegn sambærilegu mótframlagi frá einkaaðilum.

Aðstandendur verkefnisins eru iðnaðarráðuneyti, fjármálaráðuneyti, Icelandair, Reykjavíkurborg, Samtök ferðaþjónustunnar, Iceland Express, ISAVIA, Samtök verslunar og þjónustu og Landsbankinn. Íslandsstofa mun annast framkvæmd verkefnisins, en alls hafa rúmlega 130 fyrirtæki staðfest þátttöku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert