Stóra systir fylgist með þér!

Á fundinum í Iðnó í dag.
Á fundinum í Iðnó í dag. mbl.is/Kristinn

Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir hefur afhent lögreglu lista með nöfnum 56 vændiskaupenda og 117 símanúmerum sem hreyfingin safnaði í rannsóknarvinnu sinni í undirheimum Reykjavíkur. Hreyfingin kynnti vinnu sína og kröfur á fjölmiðlafundi í Iðnó nú fyrir skömmu.

Á fundinum voru m.a. lesin samtöl karlmanna við ungar stúlkur þar sem rætt var um greiðslu fyrir kynlífsþjónustu. Eitt þeirra var á mili 15 ára stúlku og 48 ára karlmanns sem sagður er vera deildarstjóri hjá opinberri stofnun.

Stóra systir segir að þrátt fyrir að löggjöf Íslendinga í þessum málum sé almennt talin til fyrirmyndar grasseri hér vændi og þrífist með þegjandi samþykki.

Fer hreyfingin fram á að gripið verði til ýmissa aðgerða, t.d. að vefsíðunni einkamál.is verði lokað, hvers konar vændisauglýsingar í fjölmiðlum stöðvaðar og starfsemi síðustu klámbúllanna hætt.

Meðlimir hreyfingarinnar komu fram í Iðnó íklæddir búrkum og kjósa nafnleysi. Hyggst hreyfingin nýta sér það að vændiskaupendur óttast mest að upp um þá komist.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert