Margir ölvaðir og undir áhrifum vímuefna

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þá voru fimm ökumenn teknir   fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Fimm þeirra, sem grunaðir eru um ölvunarakstur, voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Þrír voru teknir á laugardag, fimm á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlmenn á aldrinum 19-79 ára og tvær konur, 21 og 30 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.

Fjórir karlar á aldrinum 19-28 ára og ein kona, 36 ára eru grunuð um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna en einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Fíkniefni fundust í þremur bílanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert