Nýr iPhone í sölu hér

iPhone 4S.
iPhone 4S. Reuters

Nýr sími Apple, iPhone 4S, er kominn í  verslanir Nova. Að sögn fyrirtækisins kostar síminn  169.990 krónur hjá Nova  en ákveðin símnotkun fylgir með.

Nova segir að iPhone 4S sé mun dýrari á Íslandi en t.d. í Bretlandi og Bandaríkjunum þrátt fyrir að álagning fyrirtækisins sé óveruleg. Ísland sé enn sem komið er ekki á lista yfir lönd sem fái iPhone 4S í beina sölu frá Apple og þar sem eftirspurnin eftir símanum sé  mikil og magnið takmarkað sé ekki hægt að bjóða hann á betra verði. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert