Rýmingaráætlun fékk nýsköpunarverðlaun

Frá vinstri: Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Kjartan Þorkelsson, sýslumaðurinn á …
Frá vinstri: Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Kjartan Þorkelsson, sýslumaðurinn á Hvolsvelli, Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, forstöðumaður Blindrabókasafns Íslands.

Lögreglustjórinn á Hvolsvelli og almannavarnanefnd umdæmisins fengu í dag nýsköpunarverðlaun í opinberum rekstri fyrir árið 2011. Fengu þau verðlaunin vegna skipulags rýmingar vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli. Þá fengu þrjár aðrar stofnanir viðurkenningar.

Var það Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sem afhenti verðlaunin í opinberum rekstri á ráðstefnu sem bar yfirskriftina „Nýsköpun í opinberum rekstri – Nýjar lausnir við nýjum áskorunum“ á Grand hóteli í Reykjavík. 

Fól verðlaunaverkefnið í sér að gera viðbúnaðar- og rýmingaráætlun vegna yfirvofandi náttúruváar af völdum eldsumbrota í Kötlu og Eyjafjallajökli í samstarfi íbúa og almannavarnayfirvalda.

Í umsögn dómnefndar segir m.a. eftirfarandi: „Notuð var ný og árangursrík aðferð til að leita samráðs við borgarana, fá hugmyndir og byggja upp samvinnu við þá til að bregðast við yfirvofandi umhverfisvá.  Það skilaði sér í aukinni samábyrgð og valdeflingu borgaranna  við að leysa vandasamt og flókið verkefni. Verkefnið mætti þörfum skilgreinds hóps sem skilaði góðum árangri þegar á reyndi og skipti þá miklu máli.“

Auk þess fengu Landmælingar Íslands, Blindrabókasafn Íslands og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu viðurkenningar fyrir nýsköpunarverkefni.

Nánari upplýsingar um nýsköpunarverðlaunin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert