1,2 milljarðar vegna landakaupa

Með kaupum á Kalmanstjörn og Junkaragerði verður jarðhitaauðlind sem nýtt …
Með kaupum á Kalmanstjörn og Junkaragerði verður jarðhitaauðlind sem nýtt er af Reykjanesvirkjun öll í eigu ríkisins. mbl.is/Guðmundur Rúnar

Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að veittar verði 1.230 milljónir kr. á fjáraukalögum vegna fyrirhugaðra kaupa ríkisins á landi og jarðhitaauðlind Kalmanstjarnar og Junkaragerðis á Reykjanesi.

Fram kemur í greinargerð með tillögunni að landið og auðlindin eru nú nýtt til raforkuframleiðslu Reykjanesvirkjunar sem er í eigu HS Orku hf.

„Íslenska ríkið á fyrir um helming þeirra orkuauðlinda sem virkjunin nýtir vegna eignarhalds á ríkisjörðinni Stað á Reykjanesi. Með kaupum á Kalmanstjörn og Junkaragerði verður jarðhitaauðlind sem nýtt er af virkjuninni öll í eigu ríkisins, sem hefur mikið hagræði í för með sér, enda munu nýtingargjöld þá öll renna til ríkisins án flókinnar skiptingar milli eigenda auðlindarinnar,“ segir í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar vegna fjáraukalagafrumvarps fyrir árið 2011.

Þar kemur einnig fram að eigandi landsins og auðlindarinnar nú er sveitarfélagið Reykjanesbær. Kaupverðið greiðist að hluta með skuldajöfnun á tæplega 900 milljóna kr.  skuld bæjarins við innheimtumann ríkissjóðs vegna fjármagnstekjuskatts sem lagður var á sveitarfélagið vegna tekna ársins 2009. Gert er ráð fyrir að afgangurinn verði greiddur með beinu framlagi úr ríkissjóði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert