Leikskólakennarar sturlaðir af reiði

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.
Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara. Eggert Jóhannesson

Félag leikskólakennara mótmælir harðlega ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur um að svipta leikskólakennara svokölluðu neysluhléi. Segir Haraldur F. Gíslason, formaður félagsins, að leikskólakennarar séu sturlaðir af reiði og ætli að leita allra löglegra leiða til að koma í veg fyrir þetta óréttlæti.

Í yfirlýsingu frá félaginu segir að greiðslurnar fyrir neysluhléið falli ekki niður hjá neinni annarri starfstétt, hvorki hjá leiðbeinendum sem eru innan raða Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Eflingar eða innan vébanda BHM og ekki hjá aðstoðarleikskólastjórum sem eru í Félagi stjórnenda leikskóla.  Rökin fyrir ákvörðun borgarráðs séu þau að Félag leikskólakennara hafi gert svo góðan kjarasamning í haust.

„Með sömu rökum væri hægt að segja að leikskólastjórar hafi einu sinni gert svo góðan kjarasamning að réttlætanlegt sé að lækka laun þeirra. Félag leikskólakennara mótmælir harðlega þessari meðferð og mun leita allra löglegra leiða til að koma í veg fyrir þetta óréttlæti. Leikskólakennarar í Reykjavík eru sturlaðir af reiði!“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert