Hætt við hækkun kolefnisgjalds

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lýsti því yfir á fundi í dag með Samtökum atvinnulífsins og fulltrúum helstu fyrirtækja sem ætlað er að greiða kolefnisgjald, að hann myndi leggja til hliðar áform um breikkun stofns kolefnisgjalds sem finna má í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

Samtök atvinnulífsins og fulltrúar helstu fyrirtækja sem ætlað var að greiða kolefnisgjald af föstu kolefni áttu í dag fund með fjármálaráðherra og fulltrúum iðnaðarráðuneytisins og umhverfisráðuneytisins.

Fjármálaráðherra lýsti yfir því að hann myndi leggja til hliðar áform um breikkun stofns kolefnisgjalds sem finna má í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Hann ítrekaði einnig fyrirheit um að tryggja samkeppnisstöðu fyrirtækja sem reka starfsemi sína hér á landi gagnvart erlendum samkeppnisaðilum. Einnig leggja stjórnvöld áherslu á að tryggja að forsendur þeirra fjárfestingaverkefna sem unnið hefur verið að raskist ekki.

Á fundinum var ákveðið að aðilar myndu í framhaldinu eiga samráð um innleiðingu evrópska viðskiptakerfisins með losunarheimildir (ETS) og önnur skattamál þeim tengd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert