Varað við vonskuveðri

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Veður fer mjög versnandi á Vestfjörðum og vestanverðu Norðurlandi. Þar verður glórulaus bylur fljótlega í kvöld og allt að 20-25 m/s á Ströndum, við Húnaflóa og í Skagafirði í nótt.

Einnig er hríð á norðanverðu Snæfellsnesi, í Dölum og suður í Borgarfjörð og athygli vakin á því að víða er nokkur lausamjöll fyrir og því kóf um leið og tekur að blása, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Von er á vindhviðum í Staðarsveit og eins á Kjalanesi undir morgun.

Suðvestanlands og á Suðurlandi frystir í kvöld en vegir þar eru nú blautir og því von á ísingu þar. Suðaustanlands og á Austfjörðum frystir einnig í nótt eða snemma í fyrramálið.

Það eru hálkublettir á Hellisheiði og hálka í Þrengslum. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á Suðurlandi og Reykjanesi. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur á flestum leiðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á öllum leiðum. Þæfingur og stórhríð er á Klettshálsi og þar er ekkert ferðaveður. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja, snjókoma eða éljagangur á flestum leiðum. Flughált er í Þistilfirði og í Vopnafirði. Á Austurlandi er hálka og snjóþekja á flestum leiðum. Á Suðausturlandi flughált er frá Höfn að Kvískerjum, á öðrum leiðum er hálka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert