Ætlar að skoða vel tillögur stjórnarandstöðu

Sigmundur Ernir Rúnarsson
Sigmundur Ernir Rúnarsson mbl.is

Sigmundur Ernir Rúnarsson, alþingismaður Samfylkingar, sagðist myndu skoða vel breytingatillögur stjórnarandstöðunnar við fjárlagafrumvarpið og útilokaði ekki að hann myndi styðja sumar þeirra.

„Ég bókaði í fjárlaganefnd að ég áskildi mér rétt til að skoða betur áhrif þeirra tillagna sem hér liggja frammi í þessari umræðu og mun gera það vegna þess að það er eitthvað það versta í pólitík að afgreiða hugmyndir annarra sem vondar vegna þess að þær komi frá einhverjum öðrum flokki. Við eigum að hætta að hugsa þannig,“ sagði Sigmundur Ernir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert