Mótmæla sköttum á lífeyrissjóði

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða segir að gangi skattaáformin eftir, muni lífeyrisgreiðslur …
Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða segir að gangi skattaáformin eftir, muni lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga lækka. mbl.is/Arnaldur

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða mótmælir harðlega í ályktun hvers konar nýjum álögum á starfsemi lífeyrissjóða, hvort sem þær eru í formi hækkunar á gjaldtöku eða með nýjum sköttum.

Í ályktun frá stjórn landssamtakanna segir að gangi þessi áform stjórnvalda eftir sé ljóst að þau muni auka álögur og kostnað lífeyrissjóðanna og hafa þau áhrif að lífeyrisgreiðslur munu lækka til sjóðfélaga, sem eru eigendur sjóðanna.

„Stjórnvöld ætla að leggja sérstakan 0,0814% eignarskatt á heildareignir samtryggingahluta lífeyrissjóða vegna áranna 2012 og 2013. Jafnframt ætla stjórnvöld að lækka frádráttarbært iðgjald til viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% í 2% næstu þrjú árin.

Þá hefur undanfarna daga verið greint frá áformum um verulega hækkun gjaldtöku til að standa undir rekstri Fjármálaeftirlitsins og embættis umboðsmanns skuldara á árinu 2012. Einnig voru uppi áform um sérstakan 10,5% fjársýsluskatt á starfsemi lífeyrissjóða, sem reyndar hefur vegna mikillar andstöðu nú verið horfið frá,“ segir í ályktun stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert