Glitský gleðja augun

Glitskýin sáust greinilega frá Húsavík í morgun.
Glitskýin sáust greinilega frá Húsavík í morgun. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Glitský skreyttu himininn á Norðurlandi í morgun. Þau sáust m.a. bæði á Húsavík og á Akureyri þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Glitský myndast í heiðhvolfinu, oft í 15-30 km hæð, að því er segir á Vísindavefnum.

Þar kemur m.a. fram að glitský sjáist helst um miðjan vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu. Veðurfræðingur á Veðurstofunni segir að glitskýin séu svo hátt í himinhvolfinu að hafi þau sést bæði á Húsavík og á Akureyri megi ætla að þau hafi sést víðast hvar þar sem yfirhöfuð sást til himins í morgun.

Glitskýin voru tignarleg að sjá frá Akureyri í morgun.
Glitskýin voru tignarleg að sjá frá Akureyri í morgun. Ljósmynd/Micha Meier
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert